pregnancy MÍn sKoÐuN

miðvikudagur, mars 14

9 mánuðum seinna...

Eitt sinn ákváðu Jói og Siggi að fara á skíði saman. Þeir lögðu af stað frá heimili Jóa á litla sendiferðabílnum hans og héldu norður í land. Eftir að hafa keyrt í nokkra tíma gerði alveg heiftarlegan skafrenning og þeir festu bílinn. Þeir brutust gegnum hríðina heim að bóndabæ sem var rétthjá og spurðu mjög aðlaðandi konu sem kom til dyra þegar þeir bönkuðu hvort þeir mættu gista. "Ég veit að það er alveg hræðilegt veður og ég hef nægt húsaskjól, en ég er nýlega orðin ekkja " útskýrði hún , "og ég er hrædd um að nágrannarnir færu að krunka eitthvað ef ég leyfði ykkur að gista. Og það er ég ekki tilbúin í." "Ekki hafa áhyggjur, " sagði Jói, "við yrðum mjög ánægðir ef við fengjum að gista í hlöðunni, og ef veðrinu slotar þá förum við strax og kettinum verður setuljóst. Kona samþykkti þetta og Jói og Siggi héldu til hlöðunnar og sofnuðu vært. Um morguninn var veðrið gengið niður og þeir losuðu bílinn og héldu til skíða. Þetta varð hin besta skíðhelgi. U.þ.b. 9 mánuðum seinna fékk Jói óvænt bréf í pósti frá lögfræðiskrifstofu. Það tók Jóa smá stund að átta sig á bréfinu, en sá þó fyrir rest að það var frá lögfræðingi ekkjunnar aðlaðandi sem þeir höfðu hitt skíðahelgina góðu. Jói heimsótti vin sinn Sigga og spurði hann: "Siggi, Þú manst eftir fallegu ekkjunni á bóndabænum sem við gistum á skíðahelgina góðu fyrir norðan." "Já" sagði Siggi. "Ég man eftir henni." "Getur verið" hélt Jói áfram "að þú hafir vaknað upp um nóttina og farið inn í hús og laumast upp í rúm til hennar.""Já" sagði Siggi vandræðalegur yfir því að Jói væri búinn að komast að öllu saman, "ég verð að viðurkenna það að ég gerði það.""Og notaðir þú mitt nafn þegar þú sagðir henni hvað þú hétir?" Siggi eldroðnaði, "Já, fyrirgefðu vinur, ég gerði það víst. En af hverju spyrðu?""Það er óþarfi að afsaka elsku kallinn minn. Hún var nefnilega að gefa uppöndina og erfði mig að öllu sínu." !!!!

Og þú hélst að þessi saga endaði öðruvísi. Var það ekki? hahahah

þriðjudagur, mars 13

Jiii ég er alveg andlaus.. En samt fínt héðan að frétta.. Bara allt á fullu að skoða íbúðir.. ekki það skemmtilegasta.. Sérstaklega þegar íbúðin sem okkur langaði í seldist fyrir framan nefið á okkur!! Frekar fúllt!!

Eníveis.... Kúlan dafnar.. Og vaxtakippurinn sem ég hélt að væri tímabundinn.. Virðist ekki vera það!! Ég bara stækka og stækka... Veit ekki hvernig þetta verður þegar ég er komin á steypirinn!! En barnið virðist fíla plássið vel og hreyfir sig mjög mikið.. Bara gaman.. En það eru sko ekki allir sem fá að finna.. Greinilega pikkí ;)
Ég er komin núna 25vikur og einhverja daga... En mér finnst svo asnalegt að reikna þetta í mánuðum.. Maður getur ekki deilt bara í 4!! Þannig að mér reiknast til að ég sé þá komin rúmlega 5mán.. Allavega segir eh bók sem ég er með í láni að vikur 23-27 sé sjötti mánuðurinn... Þannig að eftir tæplega tvær vikur hlít ég að vera komin 6mán?? Það er miklu stærri tala fyrir mér að segja tæplega 6mán heldur en 25 vikur.. Hljómar miklu stærra að vera komin 6mán!??? Annars finnst mér fínt að telja í vikum það er aftur verra ef einhver spyr mig hvað það er mikið í mánuðum!! hehe
Ég er svona aðeins farin að hugsa um orlofið.. En ekki jafn mikið og Gunnar.. Hann er með þetta alveg á hreinu og er búin að ráðstafa því öllu... Sem er auðvitað fínt.. Þá þarf ég ekki að pæla í því :)
Svo eru það fatakaup... Er svona aðeins búin að skoða.. en einhvernveginn ekkert búin að kaupa.. en ég hugsa að ég detti nú aðeins í kaup bráðlega.. Allavega þetta helsta eins og samfellur og heimagalla... Mér finnst það öfga spennó að fara að kaupa... En ég held að ég fái valkvíða við að velja.....

miðvikudagur, febrúar 28

Það er kannski allt í lægi að láta aðeins vita af sér.. Ekkert mikið svo sem til útlista...
Er að spá í að hætta í sundinu.. Engu skárri .. en komin til besta sj.þjálfara í heimi, sem er einstaklega duglega að klípa í aukaskinnið mitt.. í orðsins fyllstu :)
Vááá... Það er SVO stutt í páska.. Meira að segja komin egg í búðirnar... Ég er svona að reyna að treina það að taka forskot á sæluna.. Veit samt ekki hversu lengi ég held út.. Finnst páskaegg bara svo agalega góð :) hhmmmm.....

Svo er það nýjasta ... mig langar aftur í Game-Boy tölvu.. sem spilar gömlu leikina mína.. Er búin að setja Gunnar í það verkefni að verða mér úti um eitt stykki..

Og svo eru náttlega mánaðarmót á morgun.. Jeiiii það verður SVO gaman í vinnunni.. og örugglega engin mótmæli frá bakinu :/
En svo verður voðalega gaman að skoða einkabankann á morgun... jeiiiiiiiiiiiii

föstudagur, febrúar 23

Nýtt meil...

já ég er komin með nýtt meil... Nenni ekki að vera með hotmailið lengur þar sem það er ekki skemmtilegt... Framvegis :
iris.sig@internet.is Hlakka til að sjá frá ykkur.. Ég er einstaklega dugleg í bréfaskriftum og er einmitt að taka við nýjum pennavinum núna :)

fimmtudagur, febrúar 22

Jæja er það ekki...
HaHaHa
jiii ég veit ekki hvort ég eigi að hlægja eða gráta... Mér liggur við gráti.. en ef ég hlæ er það útaf histeríu!!!!
Trúi þessu ekki!!!

þriðjudagur, febrúar 20

jiiii minn.. Hvað finnst ykkur um þessa frétt????
Spáið í því .. svona lítur okkar barn kannski út!!!!
Minnst Barn í heimi

fimmtudagur, febrúar 15

Ég er farin á Eyjuna fögru í suðri.. Nýt þar allra lystisemda sem hún hefur að bjóða (a.k.a rok) .. Býð ykkur vel að lifa og allir að horfa á Eurovision...

Þú Tryllir Mig ... Jejejejeje

mánudagur, febrúar 12

Já ég ætlaði náttleg að að fara að segja frá eh geðveikt mikilvægu.. Lennti meira að segja í eh rosalegu um helgina.. Og Gunnar alveg já bloggaðu um þetta... En ekki séns að ég muni það :) heheh

En það nýjasta er náttlega frægi kærasti minn.. Ohhh ég bara veit ekki hvernig ég á að haga mér .. Það eru bókstaflega allir á eftir mér.. Fæ hvergi frið.. Mynduð á kaffihúsunum og stanslaust hringt bæði heim og í gemsann !!!! heheheh Já ef aðeins við byggjum í USA :) heheh en í allri alvöru þá er kallinn samt soldið frægur sko.. Verst er að ég fæ ekkert útá það ....

En þið sem eruð að pæla í hvort að ég fari að birta hér myndir af mér og mínu.. Þá er það ekki á áætlun hjá mér.. Er ekki með tengingu heima og kann ekki alveg við að mæta með myndavélina í vinnuna og hlaða inn myndum :) Sérstaklega þegar það er stranglega bannað að vera á netinu til einkanota... Og ég er hætt að fitta inn á normal stærð á myndum.. Sorry.. Fáið ekki að sjá mig þenjast út.... Ekki í bili allavegana :)

mánudagur, febrúar 5

Hver bað um þennan snjó aftur?? Mér finnst þetta hafa verið alveg nóg sem var um daginn... en Nei fáum aftur snjó svo að Íris þurfi nú örugglega að halda sér í SkafÆfingu!?!? Ekki æfing sem ég kýs.. en Fæ víst engu um það ráðið...

En já ég er búin að skrá mig í eitthvað hópsund... Já ekkert nema hormónaglaðar konur að gera vatnsæfingar... Það verður ábyggilega soldið spes.... Fer tvisvar í viku uppá Reykjalund.. Og mikið vona ég að bakið verði betra.. Ekki gaman að ná svona 4-5 tímum í svefn og þurfa svo að ganga á hitapoka til að klára nóttina.. en Nóg af væli...

Við erum sem sagt búin að fara í 20v sónarinn og fengum að vita kynið.. Þannig að ef þið eruð forvitin megið þið alveg spyrja mig.. því ég má sko segja :) En ég bíð nú eitthvað með að varpa því fram hér.. Klára að segja fjölskyldunni og vinum fyrst :) En Það hreyfði sig ekkert smá í sónarnum sparkaði og sparkaði.. en fann ég eitthvað.. neiiiii auðvitað ekki.. djö.. ég er farin að halda að þetta barn sé þrjóskara en við Gunnar til samans... :) Mér til mikillar gleði var okkur ekkert seinkað eða neitt.. þannig að við höldum okkur við 23 júní... until proofed otherwise :)

En ekki fleirri væmnar fregnir..

mánudagur, janúar 29

Jæja 10 dagar frá síðasta bloggi.. soldið langur tími, sérstaklega ef maður lítur til þess að ég ætlaði að vera rosa dugleg...

En ekki er nú mikið að frétta... same old same old.. Vinna sofa vinna sofa.. handbolti og sund..
Ég er sko komin í heavy sund átak þar sem ég er búin að vera að drepast í bakinu sem hlítur að vera afleiðing stækkunar að framanverðu :)
Þannig að ég og Alla erum báðar svoldið bæklaðar.. Samt ekki eins sko.. Hún er náttlega að jafna sig eftir hörku aðgerð.. Og við ætlum að vera öfga duglegar að fara að synda...

Ég er farin að telja niður dagana þangað til að ég kemst heim til Eyja... alveg 17 dagar.. Búin að redda mér fríi á föstudeginum og ætla að mæta í hress í herjólf á fimmtudagskvöldinu en ég bað sérstaklega um að þessi dagur yrði ekki tekinn af sumarfríinu mínu, þar sem ég er að safna orlofsdögum.... :) En ég er sko búin að borga þessa ferð.. ætla ekki að láta hafa af mér 200 kall á kjaft bíl og koju.. Næsta á dagskrá er að borga ferðina í apríl fyrir fyrsta feb svo að ég sjái fyrir þessum ösnum og læt þá ekki hafa þennan 1600 kall af mér!!!

föstudagur, janúar 19

Gvendur í Byrginu

Ef þetta er ekki snilld veit ég ekki hvað!!!

Hann Gvendur í Byrginu var gamall perrakall
og bondage var hans fró.
Hann stundaði stóðlífi og kvennafar og svall.
Í Byrginu hann bjó.

Og Guðs orð hann boðaði í bland við blíðuhót,
úr ritningunni las.
Sitt sæði kvað Gvendur vera allra meina bót,
sig sjálfan Messías.

Hann flengdi smástelpur vikuna alla,
tvær í einu þegar vel gaf.
Greip í Lille ven á milli guðspjalla
og dag né nótt hann varla svaf.

Og Ríkið sá Gvendi gamla alltaf fyrir fé,
jafnóðum eydd´ann því.
Hann keypti sér gúmmíkylfu og túttuklemmu úr tré
og leðurfötin ný.

Hann flengdi smástelpur vikuna alla...

En Kompás í leikinn skarst og vildi skemma allt,
og fletti ofan af.
Nú er Gvendur í kuldann kominn út og þar er kalt
hann Byrgið yfirgaf.

Hann flengdi smástelpur vikuna alla...

mánudagur, janúar 15

Er það ekki dæmigert að vinna eh þegar þegar maður hefur ekkert not fyrir það.. Fyrsti (og eini) bingó-vinningurinn minn er stærðarinnar kertastjaki sem tekur held ég 8eða9 kerti!! Og er náttlega bara fyrir okkur... Gunnar vill henda honum en ég þverneita þar sem þetta er eini Bingó-vinningurinn minn!!! Svo eru það þessir blessuðu rauðvíns pottar á vinnustöðum.. Það eru oft bara fá númer og farið eftir eh spes kerfi.. og alveg setið um að geta verið með.. Ég hef aldrei notið þeirrar lukku að geta verið í svona fínum rauðvínspotti... Svo þegar ég fór að vinna aukalega í Smáralindinni ákváðu yfirmenn þar að breyta reglunum hafa stærri pott svo allir geti verið með.. Enda eru margir að vinna en fáir sem voru í þessum potti... Ég sagðist nú ekkert hafa áhuga á eh rauðvíni þar sem ég drykki það ekki .. En einn gáfaður benti mér á að áfengi væri gjaldmiðill og ég gæti bara alltaf farið í ríkið og skipt yfir í hvítvín.. Og ég lét náttlega tilleiðast og læt taka af mér mánaðarlega 1000kall og það er bara einn sem sé um að kaupa allar flöskurnar (sem betur fer... því ég er svo sjaldan í smáralindinni og myndi pottþétt gleyma að koma með flösku) allavegana... þá er ég í mestu makindum í vinnu þar á laugardaginn og þar er mér tilkynnt hátíðlega að ég hafi nú unnið stóra pottinn !!! Heilar 14 flööskur!!! Og hvað í andskotanum á ég að gera við 14 flöskur af léttvíni?? Ég má ekki einu sinni drekka!!!! ohhhh alveg týpískt að vinna rauðvíns pottinn þegar maður er óléttur!! Já rosa sanngjarnt!! !! !!
Þið þarna úti sem búist við að fá gjafir frá mér á næstunni.. Getið kannski giskað á hvað þið fáið... hahaha

föstudagur, janúar 12

Jæja mín búin að breyta um útlit og laga aðeins til.. Ef ég er að gleyma eh í bloggaralistanum mínum.. endilega kallið í mig.. ég laga það strax :)

fimmtudagur, janúar 11

Vá long time...
Ég bara gat ekki komist inná bloggið mitt í gegnum vinnutenginguna.. Þessi síða var ekki "örugg" skv þeim... Og þar sem ég er ekki með netið heima... Þá gat ég náttlega ekkert bloggað... En nú hafa þeir lyft okinu og hleypt mér aftur inn á þessa vonderfúl síðu...

Ekki það að ég hafi eh mikið að segja sko... Bara allt fínt að frétta úr snjóhelv... Ekki glöð með að þurfa að skafa tvisvar á dag... bara svindl sko...

föstudagur, nóvember 24

Jájá.. Ég heyrði vel í þér Hjördís mín... Var nú samt ekkert að nenna að blogga sko...
En svo ég haldi nú áfram að tala um "bestu" snyrtistofu á Íslandi... Þá hringdi þessi Anna ekkert meira í mig! (Átti sko að hringja vikunni á eftir, því hún vildi fá mig einu sinni í viku til sín) Og hún lét náttlega ekkert heyra í sér í 2 vikur... ég á endanum missti nú þolinmæðina (samt ótrúlega þolinmóð að bíða 2 vikur.. finnst mér) og hringdi í Dísu (þar sem ég var nú með númerið) Ég tilkynnti henni hátíðlega að ég væri nú mjög óánægð þess þessa þjónustu .. og Dísa varð að mér fannst soldið reið í símann (ekki útí mig heldur Önnu) og setti mig í hendurnar á stelpu sem heitir Björk sem er að klára meistarann eftir áramótin... Ég sagði henni að Anna hefði verið að bjóða mér eitthvað... En mér fannst það svo asnalegt og ég vildi frekar fá skrifað niður á blað af mér yrði boðið eitthvað og þá gæti ég bara ákveðið mig hvort ég vildi þiggja það...

Ég fer og hitti Björk og hún er með MJÖG flottar augabrúnir sjálf (ég var nefnilega búin að búa til þumalputtareglu.. Ef stelpan sem er að fara að plokka/vaxa þig er með ljótar.. gerir hún ljótar) þannig að ég var mjög glöð.. Hún var algjört æði og sinnti mér mjög vel ... Og sagði að ég væri sko í forgagni hjá þeim og það væri óþarfi að hitt mig einu sinni í viku heldur vildi hún frekar hitta mig aftir eftir 3 vikur, og gaf mér tíma á staðnum. Ég sagði henni að Anna hefði svona ýjað að því að bjóða mér eh.. og Björk fór bara fram og útbjó gjafabréf handa mér... Miklu lamennilegri og var bar miklu betri við mig.. Hún lét mér líða eins og ég skipti máli.. Annað en þessi Anna...
Þannig að ég er orðin sátt við þetta hjá þeim (náttlega fyrir utan að augabrúnin var tekin af mér!!) Já ég gleymi alveg að segja það að Dísa sagði mér að stelpan sem hafði meðhöndlað mig hafði verin látin fara! Og svo sagði Björk mér að það hafði ekki einungis verið mitt tilfelli sem orsakaði það að hún var látin fara!!!

Enívies.. Kannski ég fari svo að blogga um eitthvað annað heldur en augabrúnina á mér....

fimmtudagur, október 26

Þessi Anna var náttlega sein fyrir og vildi fá mig til sín kl 17.40 en ég beið náttlega í 20 min eftir henni... Var alveg að fara að labba út þegar hún loks kallaði á mig...
Hún þrif af mér listaverkið sem Erna vinkona hafði málað á mig um morguninn og sagði svo sem ekki neitt .. Ég náttlega þuldi náttlega upp allt sem ég mundi til að lýsa þessari hræðilegu reynslu minni. Og henni fannst nú augabrúnin (eða það sem er eftir af henni) líta alveg hræðilega út.. og í raun skildi hún ekkert hvernig stelpan gat hafa gert þetta.. hún væri klár og það hafa komið fullt af flottum augabrúnum út frá henni (já ég veit.. Asnalega orðað..En hún sagði þetta svona sjálf) Og hún sagði þessa stelpu oft taka hana sjálfa (hahaha) ... Eníveis.. Þá skoðaði hún mig voða vel, og sagði að hún vildi að ég kæmi til hennar vikulega svo hún gæti fylgst vel með þessu.. Hvort hárin myndu ekki pottþétt vaxa aftur.. En ef það myndi eh klikka þá myndi hún bara setja tatto strik inná milli... Svo endaði þetta með því að hún í raun bauð mér að koma og láta gera hvað sem er .. bara fá tíma!!!
Ég er samt ekki nógu ánægð með það... Ég er bara ekki þessi týpa til að biðja um eh svona.. Ég myndi miklu frekar vilja bara fá skrifað niður hvað ég á... Æi skiljiði ekki?? Er það nokkuð asnalegt að biðja hana bara um að útbúa eh svolleiðis??

miðvikudagur, október 25

Augabrúnir frá Helvíti Frh.

Jæja ætli Dísa í World Class hafi ekki hringt í mig á mánudaginn... Og var geðveikt leið og sorry yfir þessu.. Sagði að meistarinn á stofunni væri erlendis og hún myndi hringja í mig um leið og hún kæmi heim.. Og ég þyrfti ekki að hafa áhyggjur.. Þær myndu gera vel við mig...

Nema hvað Þessi Anna hringdi í mig í gær.. (ég inní Bónus að versla)... Og hún var mjög almennileg í símann (en samt fannst mér Dísa almennilegri) ... Og hún vildi náttlega fá að sjá mig og ég fer til hennar eftir vinnu í dag... Get eiginlega ekki beðið eftir að mæta þangað og þrífa af mér litinn... Og svo svo andlitið á henni þegar ég er búin......

Ég hef ekki nokkurn áhuga á að koma aftur á þessa stofu.. Þannig að ég veit ekki alveg hvað ég geri ef þær bjóða mér eh á stofunni....

mánudagur, október 23

AugaBrúnir Frá Helvíti !!!

Margur myndi nú ætla að ég hefði nú um eitthvað að blogga eftir síðustu reynslu mína.. Og já ég ætla sko að blogga um það...
Málið er að Gunnar gaf mér gjafakort í voða flott flíkí flíkí andlitsbað í afmælisgjöf í fyrra.. Nema hvað ég fann mér aldrei tíma til að fara .. Svo að ég ákvað að skella mér bara í litun og vax á augabrúnum í staðinn.. Þar sem vinkona mín bar stofunni svo svakalega góð meðmæli.. Ég var nú ekkert sérstaklega heppin með stúlku.. Mér fannst hún sjálf með mjög svo ljótar augabrúnir og ég hugsaði mér að hún gæti eflaust kannski bara gert betur við mig (eða vonaði það).. Ég lýsi því yfir við stúlkuna að ég hafi nú aldrei komið á snyrtisofu í þessum erindargjörðum í Reykjavík fyrr.. Ég fari alltaf á sömu stofu í Eyjum.. Og sagði svo hvernig ég óskaði eftir að hafa brúnirnar... Ég hlít að hafa verið illskiljanleg því ég fór út hundóánægð...
Svo kom að því að ég þurfti að fara aftur.. Og ég var ekki á leiðinni til Eyja þannig að ég pantaði mér aftur tíma á sömu stofu (til að klára þetta gjafakort) og viti menn ég lendi á sömu kellu.. Og hugsaði með mér að ég skyldi nú tala extra hægt og skýrt svo ég yrði nú eins fín og ég vonaðist eftir.. En nei.. Hún hlítur að vera með banana í eyrunum því út fór ég jafn ef ekki meira óánægð en í fyrra skiptið.. Og hringdi strax til Eyja og pantaði mér tíma í lit og vax fyrir jólin.. Mæti 23 des á slaginu 9!!
Svo kom að því að það átti að halda árshátíð í vinnunni hjá mér, og ég panta mér tíma í litun og klippingu á mánudagi (hafði heldur aldrei farið í slíkt í rvk) og í lit og vax á þriðjudegi (þar sem árshátíðin var á laugardeginum) ... Mín mætir í klippingu og fer út HÆST ánægð... Og fannst þetta heldur ekkert hroðalega dýrt.. En svo kom að lit og vaxi.. Ég hafði passað mig á því að fá ekki sömu stelpu og síðustu tvö skipti og taldi mig nokkuð örugga um góðan árangur í þetta skiptið. Ég mæti 10 min og seint.. Þar sem ég tafðist við að kaupa mér bíl (já ég veit að þetta kemur sögunni ekki við .. En þið þekkið mig.. Þær verða alltaf lengri hjá mér)... Stelpan sem býður mig velkomna var með frekar ljótar augabrúnir svona beint mjótt strik.. Og ég hugsa með mér að hún hlítur að vilja þær svona sjálf.. Og hún hlítur að geta mótað mínar betur.. En .........
Ég leggst í stólinn og segi henni kurteisislega að ég hafi nú komið 2svar áður og hafi verið einstaklega óánægð með þær ferðir og segi henni hvernig ég vil hafa brúnirnar... Hún er einstaklega eftirtektasöm og samsamar sig alveg með mér og segir að hún geri nú alltaf eins og kúnninn biður um....... N.B. Vildi ég hafa þær frekar mjórri en breiðari..
Hún segist hafa búið út í London frá því hún var 2ja ára.. Og þá fór um mig eh hrollur.. Vissi að snyrtinámið hér væri líklega lengra og betra?? Veit samt ekki alveg..
Hún ætlar að byrja á því að vaxa þær áður en hún litar.. Og ég stoppa hana af þegar hún er búin að slengja smá vaxi á og spyr hvort eigi ekki að lita fyrst.. hún afsakar sig og segir að það eigi jú að gera.. Svo litar hún og tekur litinn af.. Og hefst handa við að vaxa hægri augabrúnina..
Hún leyfir mér að sjá og mér finnst hún nú hafa tekið fullmikið af henni og segi að hún megi helst ekki taka meira... Hún segist aðeins ætla að laga og og næst þegar ég lyfti speglinum upp hefur hún næstum því fjarlægt ÖLL augabrúnahárin mín!!! Ég horfi lengi í spegilinn og segi að ég vilji ekki að hún klári hina augabrúnina líka!! Því næst stend ég upp klæði mig í .. Hringi í Gunnar með kökkinn í hálsinum að koma og ná í mig ASAP!! Labba fram og segi við stelpuna í afgreiðslunni með tárin í augunum að ég ætli EKKI að borga fyrir þennan tíma og hún segir nú? Og ég lyfti hettunni af hausnum og dreg hárið frá og stelpan horfir á mig og segir já ég skil..Og ég segi með tárin í augunum og grátstafinn í kverkunum að ég sé að fara á árshátíð og laugardaginn og ég geti ekki farið svona!!! Hún tekur niður nafnið mitt og símanúmer og segir að eigandinn muni hringja í mig daginn eftir .. Síðan eru liðnir 4 dagar (ekki með deginum í dag) og enginn hefur hringt ... Ég hef hinsvegar hringt 2svar .. Á föstudaginn .. Og mér var lofað að hún myndi hringja í mig eftir helgi.. Og svo í hádeginu í dag og sömuleiðis var mér lofað að það yrði haft samband... Ef þessi kona sem á þessa blessuðu stofu hefði hringt í mig á fimmtudaginn hefði nú verið hægt að bjarga einhverju fyrir árshátíðina og þetta segi ég náttlega við stelpuna sem ég tala við.. En nei...... Ekkert gert..
Þessi stelpa sem vaxaði mig svo vel sýndi enga tilburði í að móta augabrúnina.. Eins og þær gera svo oft með enda á brusta eða eh... Og Kýlir mig tvisvar þegar hún rífur vaxið af!!! .... Hún setti of mikið vax og byrjaði að þrífa það af með olíu á bómli og olían lekur öll inn í augað á mér!!!!! Þessi stelpa var ekki rassgat faglærð!!!
Sem betur fer hefur Erna yndislega vinkona mín reddað mér algjörlega.. Ég fór til hennar strax sama kvöld og hún plokkaði hina brúnina og litaði svo ofaní disassterið.. Og það hefur hún gert fyrir mig á hverju degi.. Mæti til hennar kl 8 á morgnana og hún gerir mig reddí fyrir vinnu!!
Þið eruð eflaust farin að velta því fyrir ykkur hvaða stofa er svona rosalega professional gagnvart kúnnunum sínum... Og það er sko ástæða fyrir því hvað ég nefni það seint..
Engin önnur en LAUGAR SPA!!!!!!!!!
Ég á enn um 2000 kall af gjafakortinu og ég ætla að reyna að fá það borgað út..... Fer EKKI þangað aftur!!!!!
Ég vona bara að það verði búið að vaxa nógumikið af hárum fyrir jólin. Svo það sé hægt að gera mig fína....

Og hvað lærir maður af þessu???? ALDREI að leyfa neinum plokka/vaxa ef hann er með ljótar augabrúnir!!!

P.s. Dísa í World Class Hringdi í mig í gær....

þriðjudagur, október 17

Spáið í þessu!!!

Breskur þróunarfræðingur, Oliver Curry, spáir því að mannkynið muni skiptast í tvær undirtegundir á næstu 100.000 árum. Annars vegar verði fólk hávaxið, grannt, hraust, gáfað og skapandi en hins vegar óæðri tegund manna sem verði ekki eins greind en það fólk verði ófrítt og kubbslegt. Reynist þessi spá rétt má búast við því að jarðarbúar verði annað hvort greindir risar eða heimskir púkar.Curry eyddi tveimur mánuðum í þessa rannsókn sína. Hann spáir því að á næstu þúsund árum muni mannskepnan þróast í það að vera kaffibrúnir slánar, um 180 - 210 sm á hæð. En þar sem fólk velji sér maka sé líklegt að fólk muni þróast í tvær áttir, fíngert fólk og grófgert.Þannig verði mannkynið skipt í tvær ólíkar tegundir, önnur muni hafa alla jákvæða eiginleika manna en hin alla þá neikvæðu. Þá muni kynþættir mást út og allir verða með svipaðan hörundslit. Sky segir frá þessu.