pregnancy MÍn sKoÐuN: 9 mánuðum seinna...

miðvikudagur, mars 14

9 mánuðum seinna...

Eitt sinn ákváðu Jói og Siggi að fara á skíði saman. Þeir lögðu af stað frá heimili Jóa á litla sendiferðabílnum hans og héldu norður í land. Eftir að hafa keyrt í nokkra tíma gerði alveg heiftarlegan skafrenning og þeir festu bílinn. Þeir brutust gegnum hríðina heim að bóndabæ sem var rétthjá og spurðu mjög aðlaðandi konu sem kom til dyra þegar þeir bönkuðu hvort þeir mættu gista. "Ég veit að það er alveg hræðilegt veður og ég hef nægt húsaskjól, en ég er nýlega orðin ekkja " útskýrði hún , "og ég er hrædd um að nágrannarnir færu að krunka eitthvað ef ég leyfði ykkur að gista. Og það er ég ekki tilbúin í." "Ekki hafa áhyggjur, " sagði Jói, "við yrðum mjög ánægðir ef við fengjum að gista í hlöðunni, og ef veðrinu slotar þá förum við strax og kettinum verður setuljóst. Kona samþykkti þetta og Jói og Siggi héldu til hlöðunnar og sofnuðu vært. Um morguninn var veðrið gengið niður og þeir losuðu bílinn og héldu til skíða. Þetta varð hin besta skíðhelgi. U.þ.b. 9 mánuðum seinna fékk Jói óvænt bréf í pósti frá lögfræðiskrifstofu. Það tók Jóa smá stund að átta sig á bréfinu, en sá þó fyrir rest að það var frá lögfræðingi ekkjunnar aðlaðandi sem þeir höfðu hitt skíðahelgina góðu. Jói heimsótti vin sinn Sigga og spurði hann: "Siggi, Þú manst eftir fallegu ekkjunni á bóndabænum sem við gistum á skíðahelgina góðu fyrir norðan." "Já" sagði Siggi. "Ég man eftir henni." "Getur verið" hélt Jói áfram "að þú hafir vaknað upp um nóttina og farið inn í hús og laumast upp í rúm til hennar.""Já" sagði Siggi vandræðalegur yfir því að Jói væri búinn að komast að öllu saman, "ég verð að viðurkenna það að ég gerði það.""Og notaðir þú mitt nafn þegar þú sagðir henni hvað þú hétir?" Siggi eldroðnaði, "Já, fyrirgefðu vinur, ég gerði það víst. En af hverju spyrðu?""Það er óþarfi að afsaka elsku kallinn minn. Hún var nefnilega að gefa uppöndina og erfði mig að öllu sínu." !!!!

Og þú hélst að þessi saga endaði öðruvísi. Var það ekki? hahahah

5 ummæli:

Nafnlaus sagði...

hehehe...
var alveg að búast við krakka :)

Nafnlaus sagði...

Er þetta the Íris Sig af höfðaveginum sem er með þetta blogg ?

Nafnlaus sagði...

já... Hver ert þú?

Nafnlaus sagði...

Elías Raben ! Bara orðin ólétt gamla ? Til hamingju !

Nafnlaus sagði...

Takk :)