pregnancy MÍn sKoÐuN

fimmtudagur, október 26

Þessi Anna var náttlega sein fyrir og vildi fá mig til sín kl 17.40 en ég beið náttlega í 20 min eftir henni... Var alveg að fara að labba út þegar hún loks kallaði á mig...
Hún þrif af mér listaverkið sem Erna vinkona hafði málað á mig um morguninn og sagði svo sem ekki neitt .. Ég náttlega þuldi náttlega upp allt sem ég mundi til að lýsa þessari hræðilegu reynslu minni. Og henni fannst nú augabrúnin (eða það sem er eftir af henni) líta alveg hræðilega út.. og í raun skildi hún ekkert hvernig stelpan gat hafa gert þetta.. hún væri klár og það hafa komið fullt af flottum augabrúnum út frá henni (já ég veit.. Asnalega orðað..En hún sagði þetta svona sjálf) Og hún sagði þessa stelpu oft taka hana sjálfa (hahaha) ... Eníveis.. Þá skoðaði hún mig voða vel, og sagði að hún vildi að ég kæmi til hennar vikulega svo hún gæti fylgst vel með þessu.. Hvort hárin myndu ekki pottþétt vaxa aftur.. En ef það myndi eh klikka þá myndi hún bara setja tatto strik inná milli... Svo endaði þetta með því að hún í raun bauð mér að koma og láta gera hvað sem er .. bara fá tíma!!!
Ég er samt ekki nógu ánægð með það... Ég er bara ekki þessi týpa til að biðja um eh svona.. Ég myndi miklu frekar vilja bara fá skrifað niður hvað ég á... Æi skiljiði ekki?? Er það nokkuð asnalegt að biðja hana bara um að útbúa eh svolleiðis??

4 ummæli:

Nafnlaus sagði...

Neibb ekki asnalegt... u go girl !

Nafnlaus sagði...

Vá Íris mín....er búin að lesa um þessa lífsreynslu þína....ég segi ekki annað en ÖMURLEG gella sem gerði þetta við þig. Ég fer samt alltaf á Guinot á grensás, ódýrt og klikkar aldrei. En allavega vona að ég þetta lagist hjá þér.
knús og kossar frá DK

Hjördís sagði...

Nú er kominn tími á nýtt blogg ;)

Nafnlaus sagði...

ó boj... ég á pantaðan tíma hjá þeim 4.des!!!