þriðjudagur, júní 12
En ég veit ekki hversu mikið ég á eftir að skrifa hér þar sem ég er búin að útbúa barnalandssíðu fyrir pæjuna og þar verða líklega skrifaðar eða allavegana settar inn myndir reglulega eftir að hún lætur sjá sig :) en þar er slóðin : http://gunnarsdottir.barnaland.is/ En það er líka linkur til vinstri á þessari síðu :)
föstudagur, maí 25
Adios .. Í bili.. Og munum aðeins 4 vikur í prinsessuna :)
sunnudagur, apríl 22
föstudagur, apríl 13
Ný síða
En hún er svona soldið hrá.. þar sem ég er ekki með neinar myndir í tölvunni hans Gunnars og mín er í RVK þar sem engin tenging er.. Þannig að þetta verður að duga í bili... Linkur er á hana undir litla fólkið :)
miðvikudagur, apríl 4
Svo er það bara bústaður með famelíunni í kvöld og yfir alla páskana... Get ekki beðið eftir að fá páskaegg...... mmmmmmmm
föstudagur, mars 30
föstudagur, mars 23
Við erum búin að finna okkur íbúð... Og búin að gera eitt tilboð en því var hafnað og ekki einu sinni gert gagntilboð.. Maðurinn er víst voða spes.. En þessi íbúð hentar okkur alveg mega vel og við erum svona að hugsa málið að gera annað tilboð.. Því við viljum helst ekki missa af henni...
En annars er allt fínt hérna megin .. Ég bara stækka og stækka.. Og einn vinur minn kom með brilliant hugmynd (að hans mati)... Ég ætti að klippa puttana af gúmmíhönskum og líma þá á kúluna.. og þá væri ég sko með ekta júgur.. því ér náttlega eins og kú í laginu!! Ég er nú ekki viss um að ég láti verða af þessu.. en EF ég geri það hugsa ég að ég muni pottþétt birta mynd hér... Einmitt....
miðvikudagur, mars 14
9 mánuðum seinna...
Eitt sinn ákváðu Jói og Siggi að fara á skíði saman. Þeir lögðu af stað frá heimili Jóa á litla sendiferðabílnum hans og héldu norður í land. Eftir að hafa keyrt í nokkra tíma gerði alveg heiftarlegan skafrenning og þeir festu bílinn. Þeir brutust gegnum hríðina heim að bóndabæ sem var rétthjá og spurðu mjög aðlaðandi konu sem kom til dyra þegar þeir bönkuðu hvort þeir mættu gista. "Ég veit að það er alveg hræðilegt veður og ég hef nægt húsaskjól, en ég er nýlega orðin ekkja " útskýrði hún , "og ég er hrædd um að nágrannarnir færu að krunka eitthvað ef ég leyfði ykkur að gista. Og það er ég ekki tilbúin í." "Ekki hafa áhyggjur, " sagði Jói, "við yrðum mjög ánægðir ef við fengjum að gista í hlöðunni, og ef veðrinu slotar þá förum við strax og kettinum verður setuljóst. Kona samþykkti þetta og Jói og Siggi héldu til hlöðunnar og sofnuðu vært. Um morguninn var veðrið gengið niður og þeir losuðu bílinn og héldu til skíða. Þetta varð hin besta skíðhelgi. U.þ.b. 9 mánuðum seinna fékk Jói óvænt bréf í pósti frá lögfræðiskrifstofu. Það tók Jóa smá stund að átta sig á bréfinu, en sá þó fyrir rest að það var frá lögfræðingi ekkjunnar aðlaðandi sem þeir höfðu hitt skíðahelgina góðu. Jói heimsótti vin sinn Sigga og spurði hann: "Siggi, Þú manst eftir fallegu ekkjunni á bóndabænum sem við gistum á skíðahelgina góðu fyrir norðan." "Já" sagði Siggi. "Ég man eftir henni." "Getur verið" hélt Jói áfram "að þú hafir vaknað upp um nóttina og farið inn í hús og laumast upp í rúm til hennar.""Já" sagði Siggi vandræðalegur yfir því að Jói væri búinn að komast að öllu saman, "ég verð að viðurkenna það að ég gerði það.""Og notaðir þú mitt nafn þegar þú sagðir henni hvað þú hétir?" Siggi eldroðnaði, "Já, fyrirgefðu vinur, ég gerði það víst. En af hverju spyrðu?""Það er óþarfi að afsaka elsku kallinn minn. Hún var nefnilega að gefa uppöndina og erfði mig að öllu sínu." !!!!
Og þú hélst að þessi saga endaði öðruvísi. Var það ekki? hahahah
þriðjudagur, mars 13
Eníveis.... Kúlan dafnar.. Og vaxtakippurinn sem ég hélt að væri tímabundinn.. Virðist ekki vera það!! Ég bara stækka og stækka... Veit ekki hvernig þetta verður þegar ég er komin á steypirinn!! En barnið virðist fíla plássið vel og hreyfir sig mjög mikið.. Bara gaman.. En það eru sko ekki allir sem fá að finna.. Greinilega pikkí ;)
Ég er komin núna 25vikur og einhverja daga... En mér finnst svo asnalegt að reikna þetta í mánuðum.. Maður getur ekki deilt bara í 4!! Þannig að mér reiknast til að ég sé þá komin rúmlega 5mán.. Allavega segir eh bók sem ég er með í láni að vikur 23-27 sé sjötti mánuðurinn... Þannig að eftir tæplega tvær vikur hlít ég að vera komin 6mán?? Það er miklu stærri tala fyrir mér að segja tæplega 6mán heldur en 25 vikur.. Hljómar miklu stærra að vera komin 6mán!??? Annars finnst mér fínt að telja í vikum það er aftur verra ef einhver spyr mig hvað það er mikið í mánuðum!! hehe
Ég er svona aðeins farin að hugsa um orlofið.. En ekki jafn mikið og Gunnar.. Hann er með þetta alveg á hreinu og er búin að ráðstafa því öllu... Sem er auðvitað fínt.. Þá þarf ég ekki að pæla í því :)
Svo eru það fatakaup... Er svona aðeins búin að skoða.. en einhvernveginn ekkert búin að kaupa.. en ég hugsa að ég detti nú aðeins í kaup bráðlega.. Allavega þetta helsta eins og samfellur og heimagalla... Mér finnst það öfga spennó að fara að kaupa... En ég held að ég fái valkvíða við að velja.....
miðvikudagur, febrúar 28
Er að spá í að hætta í sundinu.. Engu skárri .. en komin til besta sj.þjálfara í heimi, sem er einstaklega duglega að klípa í aukaskinnið mitt.. í orðsins fyllstu :)
Vááá... Það er SVO stutt í páska.. Meira að segja komin egg í búðirnar... Ég er svona að reyna að treina það að taka forskot á sæluna.. Veit samt ekki hversu lengi ég held út.. Finnst páskaegg bara svo agalega góð :) hhmmmm.....
Svo er það nýjasta ... mig langar aftur í Game-Boy tölvu.. sem spilar gömlu leikina mína.. Er búin að setja Gunnar í það verkefni að verða mér úti um eitt stykki..
Og svo eru náttlega mánaðarmót á morgun.. Jeiiii það verður SVO gaman í vinnunni.. og örugglega engin mótmæli frá bakinu :/
En svo verður voðalega gaman að skoða einkabankann á morgun... jeiiiiiiiiiiiii
föstudagur, febrúar 23
Nýtt meil...
iris.sig@internet.is Hlakka til að sjá frá ykkur.. Ég er einstaklega dugleg í bréfaskriftum og er einmitt að taka við nýjum pennavinum núna :)
fimmtudagur, febrúar 22
Trúi þessu ekki!!!
þriðjudagur, febrúar 20
Spáið í því .. svona lítur okkar barn kannski út!!!!
Minnst Barn í heimi
fimmtudagur, febrúar 15
mánudagur, febrúar 12
En það nýjasta er náttlega frægi kærasti minn.. Ohhh ég bara veit ekki hvernig ég á að haga mér .. Það eru bókstaflega allir á eftir mér.. Fæ hvergi frið.. Mynduð á kaffihúsunum og stanslaust hringt bæði heim og í gemsann !!!! heheheh Já ef aðeins við byggjum í USA :) heheh en í allri alvöru þá er kallinn samt soldið frægur sko.. Verst er að ég fæ ekkert útá það ....
En þið sem eruð að pæla í hvort að ég fari að birta hér myndir af mér og mínu.. Þá er það ekki á áætlun hjá mér.. Er ekki með tengingu heima og kann ekki alveg við að mæta með myndavélina í vinnuna og hlaða inn myndum :) Sérstaklega þegar það er stranglega bannað að vera á netinu til einkanota... Og ég er hætt að fitta inn á normal stærð á myndum.. Sorry.. Fáið ekki að sjá mig þenjast út.... Ekki í bili allavegana :)
mánudagur, febrúar 5
En já ég er búin að skrá mig í eitthvað hópsund... Já ekkert nema hormónaglaðar konur að gera vatnsæfingar... Það verður ábyggilega soldið spes.... Fer tvisvar í viku uppá Reykjalund.. Og mikið vona ég að bakið verði betra.. Ekki gaman að ná svona 4-5 tímum í svefn og þurfa svo að ganga á hitapoka til að klára nóttina.. en Nóg af væli...
Við erum sem sagt búin að fara í 20v sónarinn og fengum að vita kynið.. Þannig að ef þið eruð forvitin megið þið alveg spyrja mig.. því ég má sko segja :) En ég bíð nú eitthvað með að varpa því fram hér.. Klára að segja fjölskyldunni og vinum fyrst :) En Það hreyfði sig ekkert smá í sónarnum sparkaði og sparkaði.. en fann ég eitthvað.. neiiiii auðvitað ekki.. djö.. ég er farin að halda að þetta barn sé þrjóskara en við Gunnar til samans... :) Mér til mikillar gleði var okkur ekkert seinkað eða neitt.. þannig að við höldum okkur við 23 júní... until proofed otherwise :)
En ekki fleirri væmnar fregnir..
mánudagur, janúar 29
En ekki er nú mikið að frétta... same old same old.. Vinna sofa vinna sofa.. handbolti og sund..
Ég er sko komin í heavy sund átak þar sem ég er búin að vera að drepast í bakinu sem hlítur að vera afleiðing stækkunar að framanverðu :)
Þannig að ég og Alla erum báðar svoldið bæklaðar.. Samt ekki eins sko.. Hún er náttlega að jafna sig eftir hörku aðgerð.. Og við ætlum að vera öfga duglegar að fara að synda...
Ég er farin að telja niður dagana þangað til að ég kemst heim til Eyja... alveg 17 dagar.. Búin að redda mér fríi á föstudeginum og ætla að mæta í hress í herjólf á fimmtudagskvöldinu en ég bað sérstaklega um að þessi dagur yrði ekki tekinn af sumarfríinu mínu, þar sem ég er að safna orlofsdögum.... :) En ég er sko búin að borga þessa ferð.. ætla ekki að láta hafa af mér 200 kall á kjaft bíl og koju.. Næsta á dagskrá er að borga ferðina í apríl fyrir fyrsta feb svo að ég sjái fyrir þessum ösnum og læt þá ekki hafa þennan 1600 kall af mér!!!
föstudagur, janúar 19
Gvendur í Byrginu
Hann Gvendur í Byrginu var gamall perrakall
og bondage var hans fró.
Hann stundaði stóðlífi og kvennafar og svall.
Í Byrginu hann bjó.
Og Guðs orð hann boðaði í bland við blíðuhót,
úr ritningunni las.
Sitt sæði kvað Gvendur vera allra meina bót,
sig sjálfan Messías.
Hann flengdi smástelpur vikuna alla,
tvær í einu þegar vel gaf.
Greip í Lille ven á milli guðspjalla
og dag né nótt hann varla svaf.
Og Ríkið sá Gvendi gamla alltaf fyrir fé,
jafnóðum eydd´ann því.
Hann keypti sér gúmmíkylfu og túttuklemmu úr tré
og leðurfötin ný.
Hann flengdi smástelpur vikuna alla...
En Kompás í leikinn skarst og vildi skemma allt,
og fletti ofan af.
Nú er Gvendur í kuldann kominn út og þar er kalt
hann Byrgið yfirgaf.
Hann flengdi smástelpur vikuna alla...
mánudagur, janúar 15
Þið þarna úti sem búist við að fá gjafir frá mér á næstunni.. Getið kannski giskað á hvað þið fáið... hahaha