pregnancy MÍn sKoÐuN: Heyr Heyr

fimmtudagur, október 12

Heyr Heyr

Þetta er náttlega bara snilld :

Lagt hefur verið fyrir Alþingi frumvarp um breytingu á umferðarlögum, ökumanni sem hyggst beygja til hægri við gatnamót á umferðarljósum er heimilt að beygja á móti rauðu ljósi, nema sérstaklega sé tekið fram að það sé óheimilt. Flutningsmaður er Hjálmar Árnason, ásamt Björgvini G. Sigurðssyni og Einari Má Sigurðarsyni.
Frumvarpið hefur áður verið flutt en í greinargerð þess segir að oft neyðist bifreiðastjóri, sem hyggst taka hægri beygju, til að bíða á móti rauðu ljósi þótt engin umferð sé í þá akstursstefnu. Talið er að þetta myndi losa um umferðarteppur á álagstímum og almennt greiða fyrir umferð.

2 ummæli:

Nafnlaus sagði...

já þetta er algjör snilld ... vonandi að þetta létti á umferðinni í Rvk... óttast það reyndar pínu að árekstrum fjölgi, en það sakar ekki að láta reyna á þetta :)

Hjördís sagði...

Hmmmm já þú segir nokkuð...